09október

Yeasch

 Síðustu dagar og þeir næstu....

Jájá, fór á föstudaginn til Reynis og ætlaði að fá mér einn eða tvo bjóra og tsjilla bara eitthvað... endaði að sjálfsögðu á Amour en var hress í vinnunni daginn eftir. Elduðum siðan afskaplega góðan og hressandi mat hjá Reyni og Möggu á laugardagskvöldið þar sem Dagný fór meðal annars á kostum í klippingu og sjálfsmyndatökum. Eða, Magga fór reyndar á kostum i klippingum. Ég komst ekki að og fer því á Carterinn á fimmtudaginn.

Á sunnudaginn bakaði ég spelt brauð. Mjööööööööög eðlilegt...

 Á miðvikudaginn fer ég til Reykjavíkur... þar mun ég meðal annars gera eftirfarandi:
Kaupa mér föt
Fara í Bootcamp
Fara í afmæli til lúxusfrænda míns
Læra fyrir próf sem er á mánudaginn
Borða lúxusmat frá mömmu minni
Láta pabba (Hreinsann) gefa mér G&T
Kíkja í heimsókn á Fréttablaðið og Vísi
Hugsanlega fara á fyndið skemmtistaðadjamm með systur minni
Fara á kaffihús
Detta á Carterinn til Robba
Fara í ýmsar heimsóknir

Já og eflaust eitthvað fleira. Hugmyndir?

 Eins og sést á myndunum hér til hliðar fengum við strákarnir Hackysack boltana okkar senda til landsins um daginn. Sómi af því. Höfum lítið annað að gera í frímó þar sem við erum of töff til að reykja. Erum að verða nokk lunknir. Erum líka að setja skemmtilegan alþjóðlegan háskólastíl á skólann okkar hérna á Akureyri. Háskólalífið er ljúft...

Hrikalalega innantóm og leiðinleg færsla eitthvað. En ég er samt alveg hress....


09. október 2007 klukkan 00:28
Hjalti Ţór Hreinsson
6 athugasemdir
05október

Pappíra sig dreng...

 vávávávává... Ein hressasta færsla sem ég hef lesið var að detta inn á bloggið hjá Henry Birgi.

Ég tók þátt í fjölmiðlamótinu Media Masters í sumar. Ég gerði ekki gott mót þar en átti þó tilþrif dagsins fyrir höggið mitt af fyrsta teig. Sentimetrahöggið svokallaða.

Mæli með þessari færslu hérna .

Á myndinni eru Henry og Eiki Geira saman, dýnamískir, í einum af golfhringjum okkar í sumar. Þeir hefðu augljóslega mátt vera fleiri...
05. október 2007 klukkan 10:45
Hjalti Ţór Hreinsson
1 athugasemd
04október

Handbolti er töff

 Ég hef alltaf haft gaman að handbolta. Æfði sælla minninga með Víkingum í den og gerði misjafnlega gott mót.

Augljóslega sáum við fljótlega að ég er betur geymdur fyrir aftan tölvuna en inni á vellinum og því skrifa ég bara um handbolta í dag. Ég tók mér samt gott frí frá honum en svo handboltaði ég yfir mig þegar ég var tekinn í læri á Fréttablaðinu. Fór á ófáa sultuleikina og hafði gaman af.

Umgjörðin og stemmningin í KA-heimilinu í kvöld var til að mynda til fyrirmyndar, eins og lesa má um í Fréttablaðinu á morgun sem og gestapistli mínum hér .

Handboltinn hefur átt undir högg að sækja á Íslandi en vonandi er það að breytast núna. Umgjörðin er að verða betri og betri sem er nauðsynlegt til að viðhalda "þjóðaríþróttinni" okkar. Þ.e, einu íþróttinni sem við getum actually eitthvað í. Svona nánast allavega.

Ég hef sjaldan upplifað annað eins og þegar ég fór á Ísland-Svíþjóð í Laugardalshöllinni í fyrra. Fór á fyrri hálfleikinn í Serbaleiknum á 17. júní í ár og stemmningin var ekkert slor þar. Myndin er þaða. Mig dreymir því pínu um að fara á alvöru leik eins og Henry gerði til að mynda um daginn.

Ég skrifaði fyrir hina geðþekku heimasíðu Í Blíðu og Stríðu , þegar HM var í gangi í janúar á þessu ári. Íslenska landsliðið er að fara til Noregs í janúar og ég er alvarlega að spá í því að skella mér út. Yrði ekki leiðinlegt, sér í lagi ef ég gerði þetta að vinnuferð.

Annars er ég hress. Er að fara til Reykjavíkur á miðvikudaginn og verð í fimm daga. Sé fram á rólega helgi núna með vinnu og eins og einu matarboði. Öldrykkju verður haldið í lágmarki...
04. október 2007 klukkan 22:35
Hjalti Ţór Hreinsson
1 athugasemd
01október

Viđskiptavinur ársins í flokki bjórtegunda

 Skemmtanalíf háskólanema er enginn dans á rósum. Af mörgu er að taka og engu má hafna - Þannig er þetta bara... Einn af hápunktum skemmtanalífsins var á föstudaginn þegar Sprellmót háskólans fór fram. Það er í alla staði mjöööög eðlilegur dagur.

Deildirnar klæða sig þá upp í búninga og svo fara fram ýmsar keppnir. Deildin mín, Kumpáni, klæddist sem Sæðingamenn. Sumsé, maður sem tekur sæði úr dýrum. Eðlilegt. Skiptinemarnir voru ekki þeir einu sem voru ekki alveg að trúa okkur...

  Hvað um það. Hvítur sloppur var það og appelsínugulur hanski upp að öxlum. Að sjálfsögðu var hveiti blandað í vatn og Asninn sem var með okkur, var sæddur. Einmitt...

Asninn asnaðist til að hlaupa á geðþekkan myndatökumann N4 sem var að mynda herlegheitin. Brotnaði myndavélin hans í allavega nokkra mola. Hvort hún sé ónýt skal ósagt látið en ég efa það. Stóðst þig samt vel Anna...

 Nú fyrsti bjórinn var opnaður um 9.30 um morguninn og svo var bara drukkið til svona 3 um nóttina. Þá fannst mér sniðugt að fara heim enda vinna daginn eftir. Þess á milli gerði ég gott mót í kyndingum, fótbolta, í því að vera fyrir, leðurjakkasögu af dýrari týpunni, dansi á Sjallanum og jú bjórdrykkju.

Reynir og Johnson stálu þó kvöldinu þegar þeir fluttu eftirminnilega útgáfu af Gangstas Paradise með goðsögninni Coolio. Vonandi bert mér myndband af því fyrr en síðar. Gerðu ekki slæmt mót, unnu söngvakeppnina og Kumpáni vann svo heildarkeppnina. Hressandi.

 Myndin efst er af mér og Reyni í búningunum, tekin um 11 um morguninn.

Hinar myndirnar er frá stórskemmtilegu afmæli Dagnýjar, Möggu og Fanneyjar. Þær urðu allar tvítugar ef mér skjátlast ekki. Boðið var upp á þema þar sem ég skeit á mig. Hafði ekki tíma og nennti ekki að vera í búningi. Setti þess í stað hveiti í poka og var Robert Downey Jr. Kókaínaði þar með yfir mig. Reynir var John McClane og bauð upp á byssuna.

Nú er planið að taka sér gott djammfrí. ALLAVEGA þar til um næstu helgi... lofa samt engu...
01. október 2007 klukkan 16:55
Hjalti Ţór Hreinsson
2 athugasemdir
29september

....og bloggari ársins er....

 Íhaaaaaaaaaa..

Hvað segiði? Ég nennti eiginlega ekkert að blogga af því Keflavíkurfærslan var svo skemmtileg. Það hefur jú eitthvað gerst frá því ég bloggaði síðast, hér eru einhverjir punktar:

 - Ég er ekki að hata lífið á Akureyri. Fann það hvað er unaðslegt að búa einn þegar Hjörtur bjó hjá mér í nokkra daga þegar hann var að bíða eftir íbúðinni sinni.
 - Sakna Bootcamp. Langar ekki í Akureyrar-Bootcamp en er að Hreyfisala yfir mig í staðinn. Hann er að gera gott mót. Syndi líka mikið. Svo labba ég svona 17 kílómetra á dag af því ég er ekki á bíl.
 - Hacky er líka að gera gott mót.
 - Ég er að varaformanna yfir mig. Það er mjög gaman og gengur bara nokk vel. Skemmtilegt stöff og stundum alveg nóg að gera. En ekki hvað..
 - Myndin með færslunni er tekin í blíðskaparveðri á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Það var ekki leiðinlegt þar. Gaurinn á myndinni er ekki vakandi. Klukkan var 12 á hádegi á laugardegi. Hressandi.
 - Ég er byrjaður að vinna í Dogma á Glerártorgi. Það er stuð. Er að selja boli en þar sem það er ekkert stórkostlega mikið að gera nota ég tímann til að læra. Nú eða hanga. Já eða vinna í hinni vinnunni minni.
 - Hin vinnan mín tengist Fréttablaðinu. Ég er að skrifa í Sportblað sem fylgir Fréttablaðinu einu sinni í mánuði auk þess sem ég skrifa um alla handboltaleiki hér á Akureyri. Það, ofan á allt annað, gerir það að verkum að ég hef alveg nóg að gera. Já svo er ég í háskóla líka víst.
 - Það er með ólíkindum hvað ég er hættur að fylgjast með fótbolta. Já þið lásuð rétt.... Ég er hættur að horfa á hann en þar sem ég er fjölmiðlafíkill/nörd þá les ég enn ansi mikið um hann. Vona að Valur verði Íslandsmeistari á eftir. Já og kúdós á Leikni sem er liðið mitt á Íslandi.
 - Nei, ég er ekki að fara að segja hvað var skemmtilegasta stuðningsmannaliðið. Þau voru öll skemmtileg.
 - Ég er heppinn að eiga stórkostlega vini hérna á Akureyri.
 - Ég er ánægður með tattooið sem ég fékk mér í sumar.

Þannig var það punktablogg. Hver veit nema ég komi með aðra færslu um Mahmoud Ahmadinejad nú eða ástandið í Myanmar fljótlega.
29. september 2007 klukkan 11:54
Hjalti Ţór Hreinsson
2 athugasemdir
22júlí

Viđ styđjum Keflavík, nanananana

 Júbb, ég Keflavíkaði yfir mig um daginn. Skemmti mér stórkostlega. Meira um það hér.

Annars er ég í fríi í dag og ég er að nýta það í nákvæmlega ekki neitt. Ekki slæmt. Fór meira að segja í göngutúr áðan með iPodinn til að undirstrika að ég hafi ekkert að gera... Það er ekki slæmt.

Henry bauð okkur á íþróttadeildinni (og Baldri auðvitað) heim til sín í gær. Kvöldið var einkar karlmannlegt og er ekki úr vegi að þakka aftur fyrir sig. E. Stefán átti tilþrif kvöldsins, án þess að fara nánar út í það. BB kom svo með stórkostlegt atriði á myndbandi sem ég er að reyna að grafa upp á netinu. Magnað.

Fór svo með Erlu og Ester á NASA á eitthvað Burn kvöld. Ég hef aldrei fílað svona brjálaða danstónlist en ég skemmti mér mjög vel. Félagsskapurinn hafði kannski sitt að segja.... Sveittari stemmningu hef ég aldrei upplifað en að þessu var afar gaman. Hitti fullt af hressu fólki, þrjá Keflvíkinga meðal annars sem heimtuðu að sjá greinina, Soffíu var sem í dýnamísku stuði og fleira hressandi fólk.

Ég tók samt engar myndir, sem eru vonbrigði.

Keflavíkurkveðjur.


22. júlí 2007 klukkan 15:27
Hjalti Ţór Hreinsson
9 athugasemdir
17júlí

Ađ Akureyra yfir sig...

Ég skellti mér norður til Akureyrar á fimmtudaginn. Fékk frí í vinnunni á föstudaginn og flaug því síðari part dags og var boðið bein heim til Johnsons, sem sótti mig í góðmennsku sinni á flugvöllinn, og Láru. Var þar boðið upp á lúxuskvöldmat hjá lúxusfólki áður en við héldum í bæinn.

Sóttum fyndna jazztónleika sem við forðuðum okkur reyndar fljótlega út af. Ég fór á Karó með Reyni en þau á Græna Hattinn. Sátum á Karó fram til lokunar þegar við skelltum okkur í dramatískt eftirpartý í Econoline-bifreð Guðmundar. Var þar boðið upp á smá öl og eðal rokktónlist.

Föstudagurinn hófst á Strikinu. Fór þar til hádegisverðar ásamt fríðum hópi kvenna, sem taldi sjö manns, og var ég því alveg helvíti velkominn. Gott stöff samt. Fór svo út að hlaupa og var nær dauða en lífi eftir kirkjutröppurnar. Þær eru aðeins fleiri en ég hélt...

og hefst þá blogg með myndum og myndatexta:



Ég fór heim til Reynis og Möggu þar sem við vorum róleg í tíðinni. Var lagður af stað labbandi heim þegar hringt var í mig og Vilborg kom að sækja mig, ásamt Fanneyju. Fórum á Græna Hattinn og sáum þar hljómsveitina Hraun trylla lýðinn. Rándýr mynd alveg.... Átti ég afar skemmtilegt kvöld í góðum félagsskap...

Laugardagur: Reynir kom og sótti mig rúmlega 10 á vespunni sem Guðmundur á. Kom upp Dumb & Dumber fílingur í okkur...



Erum að gera gott mót strákarnir.... Ég stökk svo af áður en við vorum handteknir eða eitthvað.



Töööööööööööööööööööööööööööff...




Skelltum okkur fyrst á einhvern markað sem olli vonbrigðum. Keypti mér skyrtur í 17 samt í staðinn...



Ahhhh.... þynnkumatur að hætti hússins. Hlölli, sem gerði ekki slæmt mót...



Fórum svo á kaffihús þar sem við skoðuðum blöð og jú, drukkum kaffi. Gott stöf..... Þetta er eitthvað Frappuchino held ég.



Ég menningaði yfir mig. Fór á tvær listasýningar, eða eiginlega þrjár. Síðasta sýningin var frábær sýning hjá gaur sem heitir Georg Guðni. Þarf að einast nokkrar milljónir og splæsa í mynd eftir þann mæta mann...



Ég var síðan bara að rölta um bæinn auk þess sem ég skellti mér í sund. Afar hressandi og þægilegur dagur, tóm afslöppun... Sakna þess að vera í fríi!!!!

Já og úr menningu í ævintýri...:


Við Reynir tsjilluðum heima hjá honum en fyrr en varir vorum við komnir í partý þar sem mikið gekk á. Stórfurðulegt en afar skemmtilegt partý. Ég þakka enn og aftur fyrir SMS-ið sem Reynir sendi fyrir mig úr símanum mínum... Vakti heeeeelvíti mikla lukku... Bærinn var fyndinn og skemmti ég mér enn og aftur afar vel.

Sunnudagurinn fór svo bara í tsjll og það er ekki úr vegi að þakka Maríu fyrir farið út á flugvöll.



Gerði heiðarlega tilraun til að láta flugvélina hrapa með því að taka mynd af húsinu okkar úr flugvélinni...

Ég endaði helgina svo í Keflavík, nánar um það í sunnudagsblaði Fréttablaðsins.





Stórkostleg helgi að baki. Vikan stefnir í skvass (já í alvöru), og jafnvel golf...
17. júlí 2007 klukkan 00:09
Hjalti Ţór Hreinsson
6 athugasemdir
11júlí

Ţađ er búiđ ađ panta rigninguna...

 Ég er að fara á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 2007 (Staðfest)

Ég fékk þessa flugu í höfuðið eftir að ég ræddi við Ester um daginn og um kvöldið kannaði ég landið. Komst að því að fullt af fólki er að fara. Talaði við Elvis sem var heitur fyrir þessu. Daginn eftir vorum við búnir að bóka.

Þetta verður eitthvað rugl, það er staðfest held ég. Við Elvis erum þegar búnir að ákveða þemað sem er; "Fyndið". Gott þema held ég. Fyndna þemað byrjaði á ferðinni sem við bókuðum út, klukkan 2 aðfaranótt föstudagsins. Við komum sumsé til Eyja, báðir eftir strangt vinnukvöld að mér sýnist, klukkan 5 um morguninn á föstudeginum.

Við förum svo heim með flugi á sunnudeginum, mánudeginum, um miðjan dag held ég...

 Ég heyri tvo frasa fyrir mér í fréttum laugardagsins á Þjóðhátíð...:
1: "Veðrið hefur leikið við Þjóðhátíðargesti um helgina en ölvun í gær var mikil og sautján fíkniefnamál komu upp."
2: "Veðrið hér í Vestmannaeyjum hefur leikið Þjóðhátíðargesti grátt og þurfti 900 manns að gista í íþróttaheimilinu í nótt. Ölvun í gær var mikil og sautján fíkniefnamál komu upp."

Ég veit ekki en ég tippa á tvo í þessu máli... Stuðullinn á tvo er 1.25.

Ég er klárlega að fara að smakka lunda og syngja svo stuðningsmannalag ÍBV með Inga Sigurðssyni....

Einhverjir fleiri að fara?
11. júlí 2007 klukkan 00:40
Hjalti Ţór Hreinsson
7 athugasemdir
10júlí

For the par..... YEASCH

Ég er, eins og ég hef áður minnst á, að golfa yfir mig þessa dagana. Ég fór um daginn í fyrsta skipti í svona 8 ár á Bakkakotsvöllinn uppi í Mosfellsdal. Ég fór á þennan völl með Gunnari Má og foreldrum hans áður en ég gekk í GR og svona... Fór svo aftur á frídeginum mínum í dag, einn á ferð.

Fyrri 9 gengu lala, ekkert spes svosem... Það skal tekið fram að völlurinn er frekar stuttur og í léttari kantinum en á seinni 9 holunum fór ég á jú, pari vallarins - 35 höggum. Sumir bitrir og öfundsjúkir einstaklingar trúðu mér reyndar ekki þegar ég fór með þeim aftur í golf í kvöld en svona er þetta bara strákar mínir :)

Skorkortið mitt í dag:




Annars er golfáhuginn á íþróttadeildinni að fara í nýjar hæðir. Erum að golfa yfir okkur, sem er bara jákvætt. Vigsy var að koma nokkuð sterkur inn og menn eru alltaf að bæta sig. Af DV-mönnum þarf Gaddinn að fara að koma oftar, hann sýndi lipra takta í kvöld þær 3 holur sem hann spilaði. Elvis fékk neistann í fyrra skilst mér og Viðar ku spila. Benni spilar eitthvað líka. Í þessum skrifuðu orðum er ég að fatta að við verðum að koma á golfkeppni milli Fréttablaðsins og DV!!!

Á morgun er væntanleg færsla um Þjóðhátíð 2007.
10. júlí 2007 klukkan 01:57
Hjalti Ţór Hreinsson
1 athugasemd
08júlí

Helvíti góđur bloggari alveg...

 Það er jú komið að hinnu vikulegu færslu um ekki neitt, enn eina ferðina...

Í gúrkutíðinni miklu varð allt vitlaust á Akranesi og bjargaði vikunni. Takk fyrir það. Athyglisvert mál sem ég nenni samt eiginlega ekki að tjá mig um.

Safnaði saman drengjunum í grill heima hjá mér í gær. Varð úr afar hressandi kvöld þar sem Eiki Mojito Geira fór meðal annars á kostum í blöndun sinni á þessum skemmtilega drykk og Halifax-hönkið (eðlilegt viðurnefni) sýndi lipra takta á píanóinu. Afdrep Hreinsans komu vel út úr veislunni sem stóð ekki nema til miðnættis.

Ég og marmelaðistrákurinn ´Andsy skelltum okkur þá í afmæli til Pálínu vinkonu okkar. Steinunn, þú gerðir gott mót sem veislustjóri. Þarna var fólk að spila allskyns fyndna leiki sem mér gekk ekki vel í. Hvernig leikur maður Tinna??? Kommon... Samkynhneigð teiknimyndapersóna með einhvern hund og sveip?? Ég gafst upp...
 
Hitti þar fyrir Ester en þess ber að geta að við erum eðal djammfélagar og skelltum við okkur í miðbæinn ásamt Erlu, sem bauð ekki bara upp á versta kampavín í heimi heldur sýndi hún einnig stórkostlega takta á dansgólfinu. Þarf að fara að læra þetta Afró... Afar skemmtilegt kvöld.


Ég lýk þessari dýnamísku bloggfærslu á því að senda skilaboð ti Rúv: Í alvöru krakkar? Þetta helvítis fréttastef hefur ekki vanist og mun aldrei venjast. Vinsamlegast snúið ykkur í gamla horfið....
08. júlí 2007 klukkan 19:39
Hjalti Ţór Hreinsson
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...