Ég? Í ruglinu?

Þeir sem þekkja mig vita að ég á það til að taka knattspyrnuna ansi alvarlega. Ég er býsna harður stuðningsmaður Liverpool en atferli mitt í kringum þennan leik gegn Chelsea á þriðjudaginn var býsna sérstök. Hjörtur festi nokkur móment á filmu.



Ókei. Vítaspyrnukeppnin að byrja. Ég rölti út til að fá mér frískt loft og ná áttum. Það gekk illa. Ég ráfaði þarna um eins og ég sagði í færslunni í gær.  Ég hélt fyrir andlit mér, rumsaði út úr mér að spennan væri að bera mér ofurliði og eitthvað rugl. Hjörtur og Heiða hlógu að mér en reyndu að róa mig niður.



Jájá... hress....



Mjööööööög eðlilegur. Sat svona úti í horni, aleinn og rétt þorði að horfa á skjáinn. Sjitt... Hoppaði svo upp og niður í takt við glæstan árangur í vítaspyrnukeppninni....



Reynir og Jói voru ekki rólegir í tíðinni heldur. Hjörtur hélt áfram að hrista hausinn og taka myndir.



VICTORIOUS!!!!!!!  Ég að faðma einhvern gaur sem ég hef ekki hugmynd er hver er....  Djöfull er ég tanaður!! Gefur samt ekki alveg rétta mynd af mér...



Úr spennu í gleði...



Reynir vildi líka fá að faðma þenna ókunnuga gaur...



Skrýtin mynd af Hirti, mér og Reyni - með hressleikann í fyrirrúmi...


Jább, svona er boltinn....

Yanited menn ekkert sérstaklega sáttir í dag - skiljanlega. Þeir skitu á sig i gær þegar mest lá við og stórstjörnur liðsins brugðust illilega. Þeir verða samt Englandsmeistarar og eiga það klárlega skilið. Vona að þeir taki líka FA bikarinn og Chelsea láti því, eins og Rick Parry orðaði það svo skemmtilega, 500 milljónir punda og Deildabikarinn duga.

Slappleiki annars núna og mikill lærdómur framundan. Ekki sniðugt. Styttist svo í lúxussysturina og hressleika áður en sumarið hefst formlega með Bootcamp og vinnu þann 14. maí.
03. maí 2007 klukkan 19:58
Hjalti Þór Hreinsson
Ness skrifar ...
WOW !!!!!!

Eitt orð: BOLUR !!!!!!!

Besta myndin af þér með ókunnuga gaurnum, veit þu klipst í dýnurnar á honum.
03. maí 2007 klukkan 23:02
Systa skrifar ...
Var ekki búið að lofa einhverju lúxus myndbandi af þér að rúlla um gólfið líka?

Eftir viku verð ég lögð af stað norður!!!
04. maí 2007 klukkan 10:01
Erla skrifar ...
Bwahahahahahaha. Ég hugsaði bara eitt - Players fyrir tveimur árum. Þú ert nú upplitsdjarfari þarna ;)
04. maí 2007 klukkan 22:18
Ness skrifar ...
Players fyrir tveim árum

hóst*BOLUR*hóst

Var Valtarinn með? Hvar á að bola í ár?
05. maí 2007 klukkan 10:58
Hjalti Þór skrifar ...
Gott ef Valtarinn var ekki á kantinum, eiturhress. Man að Strákarnir (Auddi, Sveppi og Pétur) komu og reyndu að skemma leikinn á lokamínútunum með því að slökkva á sjónvörpunum og voru næstum því lamdir... Það var býsna fyndið. Allavega eftirá...

Players verður aftur fyrir valinu í ár, klárlega.
05. maí 2007 klukkan 11:49
brynja skrifar ...
selt! fra og med nú er ég fótboltasjúklingur!
shitt... thvílík hamingja á thér tharna í lokinn madur
05. maí 2007 klukkan 20:23
BB skrifar ...
Held ég myndi frekar fara niður á Auld Rauncy en að horfa á þennan leik í höfuðstöðvum bolsins. Þar sem verður heldur alls ekkert troðið út úr dyrum þremur dögum fyrir leik.
06. maí 2007 klukkan 00:01
Hjördís skrifar ...
Hjalti, Erla og Andri ætla með okkur á Players. Held að Baldur hafi rétt fyrir sér að við þurfum að mæta 3 dögum fyrir leik á Players. Ég gerði tilraun til að taka frá borð fyrir okkur sl. föstudag á Sálarballinu en svo byrjaði Sódóma og ég þurfti að fara að dansa. Hversu paunk er það!
06. maí 2007 klukkan 12:59

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...