Það er búið að panta rigninguna...

 Ég er að fara á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið 2007 (Staðfest)

Ég fékk þessa flugu í höfuðið eftir að ég ræddi við Ester um daginn og um kvöldið kannaði ég landið. Komst að því að fullt af fólki er að fara. Talaði við Elvis sem var heitur fyrir þessu. Daginn eftir vorum við búnir að bóka.

Þetta verður eitthvað rugl, það er staðfest held ég. Við Elvis erum þegar búnir að ákveða þemað sem er; "Fyndið". Gott þema held ég. Fyndna þemað byrjaði á ferðinni sem við bókuðum út, klukkan 2 aðfaranótt föstudagsins. Við komum sumsé til Eyja, báðir eftir strangt vinnukvöld að mér sýnist, klukkan 5 um morguninn á föstudeginum.

Við förum svo heim með flugi á sunnudeginum, mánudeginum, um miðjan dag held ég...

 Ég heyri tvo frasa fyrir mér í fréttum laugardagsins á Þjóðhátíð...:
1: "Veðrið hefur leikið við Þjóðhátíðargesti um helgina en ölvun í gær var mikil og sautján fíkniefnamál komu upp."
2: "Veðrið hér í Vestmannaeyjum hefur leikið Þjóðhátíðargesti grátt og þurfti 900 manns að gista í íþróttaheimilinu í nótt. Ölvun í gær var mikil og sautján fíkniefnamál komu upp."

Ég veit ekki en ég tippa á tvo í þessu máli... Stuðullinn á tvo er 1.25.

Ég er klárlega að fara að smakka lunda og syngja svo stuðningsmannalag ÍBV með Inga Sigurðssyni....

Einhverjir fleiri að fara?
11. júlí 2007 klukkan 00:40
Hjalti Þór Hreinsson
Davíð skrifar ...
Já það er farið að verða líklegt að ég kíki með, en það er glatað að fara heim á sunnudeginum og missa af Johnsen
11. júlí 2007 klukkan 05:23
Hjalti Þór skrifar ...
Já enda um mistök að minni hálfu að ræða, auðvitað förum við heim á mánudeginum!!

Og ert þú að koma dreng??????? Væri ekki slæmt. Klárlega fyndið allavega...
11. júlí 2007 klukkan 10:35
Hjördís skrifar ...
Jááááh!

Hey hvernig væri ef ég keypi miða með, svo þegar ég væri komin til Eyja myndi ég hætti við að fara á hátíðinna og heimsækja vin minn í staðinn! Fara svo ekkert heim fyrr en viku seinna. Svona, Hróarskeldu style :P
13. júlí 2007 klukkan 22:40
MaggaStína skrifar ...
Ég væri svo til í að fara til Eyja. Jæks.
16. júlí 2007 klukkan 11:39
Erla skrifar ...
Já, eyjar eru málið í ár ;) Gott þema Hjalti, ég sé að þú hefur hugsað málið vel og lengi áður en það var ákveðið :)
Get ég ekki annars treyst á að þú komir tjaldinu upp? :D
16. júlí 2007 klukkan 16:11
Hjalti Þór skrifar ...
Rétt er það Erla :)

Þemað var ákveðið þegar eina farið sem var laust með dallinum var klukkan 02 um nótt...

Tjaldið segirðu...? Ég er auðvitað fagmaður fram í fingurgóma þegar kemur að tjöldun og því sé ég ekki fram á nein vandamál á þeim bænum. Nema þá að veðrið verði hreinlega of gott til að tjalda....

Og já Magga, það er eiginlega bara ekki töff að vera ekki að fara til Eyja sko... þetta er bara það sem maður er að heyra...
16. júlí 2007 klukkan 23:15
maggitoka skrifar ...
Bara að benda ykkur á skildu fatnaðinn í eyjum...pantaðu stykki á eimailinu..skildu eftir símanr og ég bjalla í þig á föstudeginum(á þjóhátíð) og kem þurrum og hreinum bol til þín...smokkur,sleipefni og nuddolía fylgir hverjum bol...
magnús sími 6636556

http://blog.central.is/eyjabolir2007/
26. júlí 2007 klukkan 00:42

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...