Ađ Akureyra yfir sig...

Ég skellti mér norður til Akureyrar á fimmtudaginn. Fékk frí í vinnunni á föstudaginn og flaug því síðari part dags og var boðið bein heim til Johnsons, sem sótti mig í góðmennsku sinni á flugvöllinn, og Láru. Var þar boðið upp á lúxuskvöldmat hjá lúxusfólki áður en við héldum í bæinn.

Sóttum fyndna jazztónleika sem við forðuðum okkur reyndar fljótlega út af. Ég fór á Karó með Reyni en þau á Græna Hattinn. Sátum á Karó fram til lokunar þegar við skelltum okkur í dramatískt eftirpartý í Econoline-bifreð Guðmundar. Var þar boðið upp á smá öl og eðal rokktónlist.

Föstudagurinn hófst á Strikinu. Fór þar til hádegisverðar ásamt fríðum hópi kvenna, sem taldi sjö manns, og var ég því alveg helvíti velkominn. Gott stöff samt. Fór svo út að hlaupa og var nær dauða en lífi eftir kirkjutröppurnar. Þær eru aðeins fleiri en ég hélt...

og hefst þá blogg með myndum og myndatexta:



Ég fór heim til Reynis og Möggu þar sem við vorum róleg í tíðinni. Var lagður af stað labbandi heim þegar hringt var í mig og Vilborg kom að sækja mig, ásamt Fanneyju. Fórum á Græna Hattinn og sáum þar hljómsveitina Hraun trylla lýðinn. Rándýr mynd alveg.... Átti ég afar skemmtilegt kvöld í góðum félagsskap...

Laugardagur: Reynir kom og sótti mig rúmlega 10 á vespunni sem Guðmundur á. Kom upp Dumb & Dumber fílingur í okkur...



Erum að gera gott mót strákarnir.... Ég stökk svo af áður en við vorum handteknir eða eitthvað.



Töööööööööööööööööööööööööööff...




Skelltum okkur fyrst á einhvern markað sem olli vonbrigðum. Keypti mér skyrtur í 17 samt í staðinn...



Ahhhh.... þynnkumatur að hætti hússins. Hlölli, sem gerði ekki slæmt mót...



Fórum svo á kaffihús þar sem við skoðuðum blöð og jú, drukkum kaffi. Gott stöf..... Þetta er eitthvað Frappuchino held ég.



Ég menningaði yfir mig. Fór á tvær listasýningar, eða eiginlega þrjár. Síðasta sýningin var frábær sýning hjá gaur sem heitir Georg Guðni. Þarf að einast nokkrar milljónir og splæsa í mynd eftir þann mæta mann...



Ég var síðan bara að rölta um bæinn auk þess sem ég skellti mér í sund. Afar hressandi og þægilegur dagur, tóm afslöppun... Sakna þess að vera í fríi!!!!

Já og úr menningu í ævintýri...:


Við Reynir tsjilluðum heima hjá honum en fyrr en varir vorum við komnir í partý þar sem mikið gekk á. Stórfurðulegt en afar skemmtilegt partý. Ég þakka enn og aftur fyrir SMS-ið sem Reynir sendi fyrir mig úr símanum mínum... Vakti heeeeelvíti mikla lukku... Bærinn var fyndinn og skemmti ég mér enn og aftur afar vel.

Sunnudagurinn fór svo bara í tsjll og það er ekki úr vegi að þakka Maríu fyrir farið út á flugvöll.



Gerði heiðarlega tilraun til að láta flugvélina hrapa með því að taka mynd af húsinu okkar úr flugvélinni...

Ég endaði helgina svo í Keflavík, nánar um það í sunnudagsblaði Fréttablaðsins.





Stórkostleg helgi að baki. Vikan stefnir í skvass (já í alvöru), og jafnvel golf...
17. júlí 2007 klukkan 00:09
Hjalti Ţór Hreinsson
Hjördís skrifar ...
Hrikalega er ég ánægð með þú hafir hlustað á mig og farið að skoða nágranna okkur Georg Guðna, sem er toppmaður og á yndisleg og hæfileikarík börn. Það sést meira að segja í húsið hans á þessari eðalmynd af okkar húsi!

Nú VERÐUR þú að segja hvað var í þessu sms-i, engar svona hálfkveðnar vísur kallinn minn!

Annars var hressandi að hitta þig gær eftir Keflavíkurferðina þegar ég gekkst inn glaðbeittur og tilkynntir að þú værir fullur. Alltaf hægt að að stóla á öl hjá þér, enda fékkst frá mér þennan líka eðal bjór frá Thy í Thisted! Sé engar þakkir fyrir það ha.... :)
17. júlí 2007 klukkan 00:29
MaggaStína skrifar ...
Mikið var þetta skemmtilegt blogg :D Geturðu ekki bloggað svona á hverju kvöldi þannig að það bíði svona færsla fyrir mig að lesa á hverjum morgni? Þú getur tekið þér frí á fös og lau kvöldum, því þá er ekki vinna daginne ftir hjá mér? Ok? Gott plan.
Annars skaltu bara fara að hætta þessari vinnu og koma aftur norður. að er ekki vit í neinu öðru. Hver þarf vinnu?
P.s frappó er ekki það sama og ískaffi. Ískaffi er muuuun betra.
17. júlí 2007 klukkan 09:52
Anna Lóa skrifar ...
Gaman að fá sjá myndir.... rosalega eru þið töff á vespunni *vúhú*
18. júlí 2007 klukkan 11:53
brynja baun skrifar ...
hæ sæti! verdur thu i rvk-inni i lok agust???
18. júlí 2007 klukkan 23:19
Hjalti Ţór skrifar ...
BRYYYYYNJAAAAAAA!!!!

Nei :O Hvað ertu að pæla að koma þá???!?!!!!!! Skrýtna stelpa...

Já og takk Magga :)

Og já Anna, við Reynir vorum ekki að gera slæmt mót sko...

Er búinn að svara systur minni, þessari helvíti eðlilegu, í eigin persónu :)
19. júlí 2007 klukkan 01:20
Davíđ skrifar ...
Þú ert snillingur. Komdu aftur hingað... Færð vinnu hjá einhverju bresku slúðurblaði
21. júlí 2007 klukkan 13:19

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...