02október
Það styttist..

Jú, það er ein færsla.
Það styttist óðum í Reykjavíkurför mína en ég er enn að vona að ég nái að gabba einhvern til að keyra með mér á fimmtudeginum 12. október. Planið þá er að kíkja jafnvel á kaffihús um kvöldið, Anna hatar ekki að versla og því er spurnning um að detta í Kringluna á föstudeginum auk þess sem er aldrei að vita nema maður splæsi á Carterinn jafnvel? Ég set málið í nefnd.
Á föstudeginum er svo Lárus frændi minn eins árs og verður honum haldin veisla í tilefni af því.
Um kvöldið mun Davíð, sem ég tíundaði um í færslunni hér fyrir neðan, halda ærlegt partý. Eins og ég hef áður greint frá hötum við ekki að fá okkur og skemmta okkur saman en fát kom á mig þegar í ljós kom að ég myndi hugsanlega missa af partýinu þar sem það kom líka til greina að halda það á laugardeginum. Davíð stóð við sitt og því verður vatnslásað rækilega á föstudeginum. Stórkostlegt.
Laugardagurinn fer væntanlega í þynnku áður en Sundlaugavegurinn verður fyrir barðinu á rommþyrstum og eiturhressum pörupiltum. ROMM!!!!!!!!! Eins gott að það verði búið að taka þessa íbúð í gegn áður en við komum, heimsókn í Ikea myndi ekki skemma fyrir neinum, BB.
Um kvöldið er svo lokahóf KSÍ en eins og myndin hér fyrir ofan sýnir, þá er ég ávallt hress á þessum hófum. Þarna er ég með tveimur ungum leikmönnum FH og einum úr Breiðablik á hófinu í fyrra þar sem ég bolaði gjöööörsamlega yfir mig. Þeir sem mæta í partýið fá að sjá hinar sextán myndirnar, en þessi er sú slakasta af þeim. Lokahófið er alltaf skemmtilegt.
Skellti mér á Ólafsjförð á laugardaginn. Einstaklega gott að koma þangað. Toppfólk þar á ferðinni en ég var ekki kominn inn fyrr en Jói, sem var að sjálfsögðu klæddur í Man U treyju, bara af því hann vissi að ég held með allt öðru liði, var búinn að bjóða mér nýbakaðar pönnukökur og meððí. Hef ekki fengið pönnukökur í langan tíma. Ætla að bæta úr því aftur fljótlega.
Svo fékk ég það sem mig hefur langað í lengi, almennilegan fisk. Þið Reykvíkingar fáið auðvitað aldrei almennilegan fisk (ég er ekkert byrjaður að tala eins og eitthvað út-á-landi-lið, búinn að eiga heima á Akureyri í alveg sex vikur). Fékk líka gefins sæg af fiski sem verður eldaður í vikunni.
Góður laugardagur.
Sunnudagur... gerði ekkert. Mjög gott.
og að lokum.... ætli þið ekki að læra, hálfvitarnir ykkar????
Af mbl.is:
Sautján ára ökumaður með þriggja mánaða gamalt ökuskírteini var stöðvaður á 154 km hraða á Reykjanesbraut til móts við Smáralind í gærkvöldi, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Kópavogi. Hámarkshraði þar er 70 km. Ökumaðurinn ungi tjáði lögreglu að hann væri nýbúinn að sjá kappakstursmynd í bíó og hefði verið að reyna að lifa sig inn í hana.
Önnur frétt af mbl.is:
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði kappakstur tveggja ungra manna á Sæbrautinni á tíunda tímanum í gærkvöldi. Mældust þeir báðir á rösklega 130 km hraða en hámarkshraðinn er 60 km/klst. Mega þessir ökukappar eiga von á vænni sekt og því að missa ökuleyfið í það minnsta í mánuð fyrir tiltækið.
Það er greinilegt að þessi endalausi áróður er að skila nákvæmlega ekki neinu, því miður. Ég er reyndar sérstaklega pirraður yfir þessum gaur úr fyrri fréttinni af því rétt áður var ég að lesa einhverja óhugnalegustu frétt sem ég hef lesið um atburð á Íslandi.
Fjósist þið til að aka almennilega!!!!!!!!!!!!!!!


Búinn að læra gjörsamlega yfir mig. Ég hef ekkert bloggað af því ég hef ekkert til að blogga um. Það eina sem ég hef gert frá því á síðasta föstudag er að læra, vera í skólanum og læra síðan aðeins meira. Nánast það eina.
Þegar maður er að læra þá skapar maður sér ákveðið andrúmsloft. Maður er á góðum stað, á þeim tíma sem hentar manni (mér td á nóttunni) og í gær tók ég þann pól í hæðina að kveikja á kertum og bjóða upp á Los Heartbreakers og Buena Vista Social Club. Ekkert samkynhneigt bara.... Þrátt fyrir það gekk vel, og reyndar var ég með rósina sem ég gaf unnustu minni um síðustu helgi líka, bara aðeins til að samkynhneigja endanlega yfir mig.
Það er laugardagskvöld/nótt og ég er í ruglinu bara. Er að læra! Fékk líka þarfa áminningu í dag um að ég þurfi að taka mig á í þessum skóla.... Próf á mánudaginn, miðvikudaginn og svo á föstudaginn. Semsagt, ekki mikill tími til að gera neitt í næstu viku nema læra.
Skellti mér um helgina til Reykjavíkur. Lögðum af stað síðla parts á föstudegi, við Anna ásamt hressum tappa að nafni Jón. Ferðin gekk svona líka ágætlega þar til ég tók við stýrinu þegar við vorum hálfnuð, í Brú. Nokkrum mínútum síðar sprakk á á bílnum, og dekkið nánast rifnaði í sundur. Helvíti gaman alveg enda var bara ekkert kalt úti.
