30október

Lexington

Hótanir Lexa eru hvatningin að þessari færslu.

Eins og ég sagði í síðasta bloggi hef ég ekkert til að blogga um nema veðrið hér á Akureyri, djammið hér á Akureyri, og skólann hér á Akureyri. Allt brjálað á öllum þessum vígstöðum.

Það er snjór á Akureyri.

Það er mikið að gera í skólanum, 2-3 próf/ritgerðir/ógeðisverkefni í HVERRI viku núna. Hressandi.

Ég nenni ekki að blogga um einhverjar hvalveiðar, prófkjör Sjálfstæðisflokksins eða fótbolta.

Reyndar skulda ég klárlega auðmýktarfærslu, og ég veit það vel. Hún bíður aðeins, þangað til hlutirnir svona róast aðeins niður og dramað lækkar um kvartfjórðung eða svo.

Þá að djamminu.

Á föstudaginn vorum við í ógeðslegu prófi og eftir fáránlega mikinn lærdóm var það kærkomið þegar við Reynir og Hjörtur settumst inn á Karólínu í tvo bjóra og TSJILL. Hjörtur datt reyndar í eitthvað fleiri en ég var þá kominn heim og náði að leggja mig í tvo tíma eftir eeeerfiða viku. Við Hjörtur ákváðum að ég myndi kíkja til hans, með þrjá bjóra í fórum mínum og góða skapið (?), en við sáum fyrir okkur að kíkja jafnvel á mynd eða eitthvað.

Það leystist út í drykkju, enduðum hjá Reyni þar sem við drukkum meira og ákváðum svo "rétt að kíkja" í bæinn þar sem var eitthvað bjórkvöld hjá lögfræðinemum. Ódýr bjór, drama, dans og almennur hressleiki einkenndi þetta líka ágæta kvöld sem endaði svo á nótum sem það hefði alls ekki átt að enda á. Þeir sem vita það taka þetta bara til sín, aðrir þurfa ekkert að pæla í þessari setningu.

Laugardagur: Þynnka, sem svo lagaðist með sturtubjórnum eftir aðeins meira drama fyrr um daginn. Sjittt...

Jæja, það var amk Halloween ball hjá Háskólanum og ákváðum við strákarnir, ég, Reynir og Hjörtur, að fara klæddir sem rónar. Sem fer okkur vel... fórum í hjálpræðisherinn á föstudaginn, keyptum föt sem við eyðilögðum jafn óðum. Það var fjör.

Svo komu nokkrir góðir gestir til mín áður en við héldum í bæinn þar sem var bara mikið mikið drukkið og var skemmtunin með ágætum. Myndirnar hér fyrir neðan tala sínu máli....

Sunnudagur: Tsjill og "próflærdómur" fyrir próf sem við þreyttum í morgun.



Við rónarnir við drykkju heima hjá mér... Reynir, ég og Hjörtur. Ég býð upp á snjáðar, útúrmálaðar og ógeðslegar jogginbuxur, í Landsvirkjunar "Hafði samband" bolnum, sem ég var búinn að stappa á á jörðinni, með töff bindi, og í forlátum jakka sem við keyrðum yfir og var allur rifinn. Hjörtur er í wifebeater, með tómatsósu og súkkulaði, í gallabuxum og leðurjakka sem bæði voru einkar skítug og rifin. Hárið er svo túberað af Kristínu, sem tók einmitt allar þessar myndir og eins og sjá má kann hún nokkuð fyrir sér í ljósmyndun stelpan! Klassamyndir hjá henni að venju.


Reynir var einnig í gallabuxum og gallajakka og í alveg eins bol og ég. Hann var svo með glæsilegan Benidorm hatt og var búinn að skíta sig allan vel út. Skegg hans er ekki að gera slæma hluti heldur. Þessi mynd er stórkostleg og er þegar farið að ræða um að stækka hana upp og hengja hana á stofuvegginn hjá Reyni. Klárlega maður kvöldsins.


Við Reynir komumst í rauðan matarlit sem fékk að fara frjálslega yfir okkur báða....


Jú, liggjandi fyrir framan staðinn þar sem Halloween ballið var haldið, allir dauðir eða við það að deyja, í eigin volæði og viðbjóði. Stórkostleg mynd.

Hressandi, ekki satt?
30. október 2006 klukkan 19:32
Hjalti Ţór Hreinsson
9 athugasemdir
26október

Bleh

Þess má geta að enn og aftur er bara eeeeeekkert að gera í þessum skóla... ef það er ekki próf, þá er ritgerð eða eitthvað risa lúxus verkefni. Samt hefur maður alltaf tíma fyrir smá bjór og djamm, en ekki hvað?

Átti fína helgi síðast, einmitt.... Hélt mitt fyrsta partý hérna á Akureyri. Nágrannarnir örugglega helvíti hressir með það enda vorum við hérna til tvö. Mér er sagt að skömmu eftir snakkslaginn okkar Reynis hafi ég skipað fólki að vera áfram í stað þess að fara niður í bæ. Fórum út um tvö, að mér er sagt, en segja má að Johnson og unnusta hans hafi stolið kvöldinu með gítarspili, góðum söng og síðast en ekki síst, jóðli! Johnson, ánægður með þig.

Við Reynir fórum víst á kostum í snakkslagnum sem varð til þess að íbúðin mín var ógeðsleg á sunnudeginum. Sé okkur fyrir mér með snakkkörfurnar á hausnum að henda papriku Euroshopper snakki í hvorn annan.... fjör.

Gin og fanta er gott! Jói á heiðurinn af því... ég fékk mér Southern Comfort í Sprite, sem var líka gott.

Vá hvað foreldrar mínir fengju áfall ef þeir vissu af þessari bloggsíðu sem snýst ekki um neitt annað en drykkjuskap minn og gálgahúmor sem svona fimm aðrir en ég skilja. En það er bara hressandi.

Snjórinn er kominn á Akureyri. "Ef snjó skyldi kalla," segja kokhraustir Akureyringar sem kalla þetta "fönn" á meðan ég klíf hvern skaflinn á fætur öðrum. Rúmlega ökkladjúpur snjór og frost. Það er fínt.

Búinn að vera að læra yfir mig. Held því áfram.

Ég hef ekkert að tala um annað hérna en lærdóm, veðrið á Akureyri og áfengi. Er það eðlilegt? Það segir sitt þegar Íslandsmeistarinn Googlar "Beer eitthvað" og dettur inn á bloggið mitt. Ánægður með það samt.

Halloween partý á laugardaginn... hætt við því að maður píni sig þangað. Aldrei að vita nema við Reynir bjóðum upp á rónadress, sem er jú, mjög viðeigandi...
26. október 2006 klukkan 03:58
Hjalti Ţór Hreinsson
4 athugasemdir
20október

The Brugal-man

Jááááááááááhhhh...

Sko, málin standa svona. Rommið okkar allra er að verða búið. Ég heimsótti opinbera heimasíðu Brugal rommsins, þar sem eitt sinn var hægt að kaupa romm og láta senda sér. Mér til mikillar skelfingar er það ekki hægt lengur.

Í örvæntingu minni eftir meira rommi sendi ég mail á fyrirtækið. Mailið mitt var mjög eðlilegt og leit svona út:



Dear Brugal people,

I live in Iceland and after visiting Spain I am craving for some more Brugal! The problem is, you cant buy it here in Iceland!!! Can I buy a few bottles of you? I cannot get the shop link to work so I dont know...

I like my Brugal in a big glass filled with ice, mixed with Fanta Lemon, which you cannotbuy in Iceland either! I am in a lot of trouble ut I will do a lot to have this drink again..

Please contact me soon and help me!

Best regards from a Brugal-man in north Iceland,
Hjalti

Ég fékk jú mail til baka áðan sem hljóðar svona:

Hi Hjalti,
I am sorry, but our company no longer sells/imports Brugal into Europe. To my best knowledge there is no import of Brugal in Europe or USA at this time.
Maybe i can help you personally...please let me know which kind of Brugal you are looking for? You're mixing it, so i guess Carta Dorada?
Take care,
Oskar.

Eigum við að ræða toppmann eða?? Ánægður með Skara frænda minn... þetta er maður sem veit um hvað málið snýst!

Ég tek það samt fram að það var algjörlega Nestorinn sem fann þennan drykk og á allan heiður skilinn fyrir það. Hann kom með hann til landsins... ég nennti samt ekkert að útskýra það fyrir Skara...

Næsta vandmál er svo auðvitað Fanta Lemonið. Það eru jú til nokkrar flöskur hérna en eftir að hafa ráðlagt mig við Nestorinn erum við sammála um að reyna að fá eins og tvær flöskur af Brugal Anejo á mann. Við þurfum við slatta af Fanta.. ég er búinn að finna það, hérna. Þarna erum við að tala saman... 24 litlar dósir, ein dós dugar í eitt glas, á 1500 kall. Líklega um 4500 innflutt?

Við létum ekki staðar numið þarna og ég hringdi niður í ÁTVR rétt í þessu. Þar var mér tjáð að það væri dýrt að flytja inn áfengi.... Það kostar, miðað við 750 ml flösku sem er 40% um 2500 kall plús virðisaukinn. Þannig að þetta yrði kostnaðurinn við flöskuna, sendingakostnaður, þessi áfengisgjöld plús skatturinn... Maður má þó flytja inn eins mikið og maður vill, það er ekkert því til fyrirstöðu að kaupa 10 flöskur til dæmis..

Við Nestorinn pælum í þessu en ef einhver hefur ekki áttað sig á því þá hööötum við nú ekki rommið okkar...
20. október 2006 klukkan 19:45
Hjalti Ţór Hreinsson
6 athugasemdir
19október

Einmitt

Ekkert að skíta á mig á þessu bloggi..

Allavega, síðan síðast: Fór til Reykjavíkur um síðustu helgi. Topp partý hjá Davíð á föstudeginum og lokahóf KSÍ á laugardeginum. Skemmti mér vel, var fullur og hress. Býst samt ekki við því að koma til Reykjavíkur aftur fyrr en um jólin, en búast má við því að einhverjir komi í heimsókn. Gussi og Elvis þeirra á meðal. Verður ekki leiðinlegt.

Fengum okkur romm í fyrirpartýinu hjá Nestornum. Það var auðvitað að gera stórkostlega hluti... fékk svo með mér nokkrar Fanta Lemon og verður dottið í eitt glas á laugardaginn.

Fór í afmæli til Ágústs í fyrradag. Hann er frá Kína og er mjög hress. Ekki leiðinlegt fyrir fátæka námsmenn, sem kunna ekki neitt, að detta inn í kökuboð og lúxus.

Ætla að byrja að lyfta í Bjargi. Reynir, fjósastu til að fara að koma með mér.

Ég er byrjaður að drekka kaffi á hverjum degi í skólanum, amk tvo bolla á dag. Það er fínt, en dýrt.

Hjörtur átti afmæli í gær, til hamingju með það, en hann kíkti til mín um kvöldið ásamt Reyni og Davíð, sem staddur var á Akureyri. Hann er út um allt drengurinn. Fengum okkur bjór og pizzu yfir leiknum sem leiddist síðan út í aðeins meiri bjórdrykkju. Duttum síðan inn á Kaffi Karólínu, hressandi nafn það, þar sem er jú, háskólatilboð á bjór. Tveir fyrir einn, semsagt einn á 300.

Við hötuðum það nú ekki og úr varð gott fyllerí, á miðvikudegi, þar sem við vorum komnir í staup og fleira. Fórum reyndar ekki í neitt harðara an Ópalskotið en Anna, sem kíkti á Karólínu til okkar edrú, fór strax í tvö Tequila staup. Ekkert drukknir undir borðið strax.... Er því þunnur núna í Sálfræði. Hressandi.

Framundan er partý hjá mér í Hrísalundinum. Þangað verður um tuttugu manns troðið á laugardaginn og býst ég við mikilli ölvun og mikilli skemmtun. Miðað við lætin okkar yfir leiknum í gær þá er ég farinn að kvíða fyrir teitinu, fyrir hönd nágrannanna. Ef þeir eru að lesa þetta þá biðst ég fyrirfram afsökunar á látunum.

Kemur helvíti mikið á óvart að það sé háskóladjamm aftur um helgina. Eitthvað dæmi sem ég veit ekkert hvað er og mun ekki mæta sökum partýsins. Um næstu helgi er að sjálfsögðu eitthvað í gangi, eitt Halloween fyllerí. Gott að það er bara eeeeeekkert að gera í náminu...

Á morgun fæ ég myndir af mér frá Sprelldeginum og mun ég auðmýkja þeim inn á síðuna sem fyrst.

Og að lokum, spurning um að fjárfesta í heimasíðunni Jimmy.com? Hún er jú til sölu núna á Ebay fyrir 28.000 dollara, eða tvær milljónir íslenskra króna. Ekki amalegur díll það... á Ebay segir þetta um urlið Jimmy.com: "jimmy.com was bought some years ago for a 5 figure sum. This domain has multiple links pointing to it and get's lots of visitors. We have already rejected a number of 5 figure offers but must sell now. With 94 Million domains currently registered, This is a one off opportunity to secure a unique, valuable and memorable .com - a name that everyone will recognise. Good Luck"

Ennþá hefur ekkert tilboð borist þrátt fyrir að startind bidið hafi ekki verið nema tvær milljónir....

19. október 2006 klukkan 18:47
Hjalti Ţór Hreinsson
6 athugasemdir
10október

Ţađ hlaut ađ koma ađ ţessu

Ekki seinna vænna, alveg kominn 10. október og mig fennti í kaf á leiðinni heim úr skólanum áðan. Það er semsagt byrjað að snjóa á Akureyri og segja gárungar að þetta sé mjög eðlileg tímasetning. Mér var sagt að hunskast til að draga fram snjóþrúðirnar og kaupa mér skóflu þar sem það þarf að moka svalirnar á hverjum degi ef ekki á illa að fara. Myndirnar tala sínu máli.

Það var einmitt það.

Annars hefur lítið gerst frá því um helgina. Nema það að ég er búinn að vera duglegur að læra. Ekki seinna vænna... ritgerð á fimmtudaginn og tvö verkefni, eitt fyrir fimmtudag og annað fyrir föstudag. Ekkert að gera bara...

Svo er það Reykjavík City síðla parts fimmtudags. Það verður stórkostlegt... topp ferðafélagar og helgin lofar góðu. Partý hjá Davíð á föstudaginn og lokahófið á laugardaginn. Fyrir það, romm.

Talandi um Davíð, hann vakti mig og Önnu einmitt rúmlega sex í morgun með símtali. Þá var hann ekki edrú, búinn að missa af fluginu sínu til London frá Newcastle og þegar ég heyrði í honum í hádeginu hafði hann misst af vélinni til Íslands. Frábært alveg. Það var ekkert fyndið að heyra hann lýsa því hvernig allir í röðinni á flugvellinum voru að horfa á hann en Davíð hætti lítið að drekka síðustu nótt. Kúdós Davíð minn, kúdós :)

Annars bara blehhh.....

Mynd 1: Tekin af svölunum út..
Mynd 2: Tekin út að Samkaupsbílastæðinu, bílarnir komnir á kaf
Mynd 3: Tekin yfir Kristjánsbakarí. Sést ekki í þakið. Gott mál.



PS: Myndirnar eru aðeins dekktar með hjálp nýjustu tækni, er ekki alveg orðið svona dimmt klukkan 18 þegar myndirnar voru teknar...
10. október 2006 klukkan 23:41
Hjalti Ţór Hreinsson
1 athugasemd
10október

Eđlilegt

Hérna fyrir neðan eru nokkrar myndir frá Sprelldegi Háskólans á Akureyri á föstudaginn. Allar deildirnar klæddu sig upp samkvæmt einhverju þema og mín deild var jú með Gay Pride þema. Drykkjan hófst á hádegi og gekk í einhverja sextán tíma..


Þetta er deildin mín að ganga niðri í bæ frá einu af skólahúsunum, tók einhverjar fimm mínútur... samkynhneigðin allsráðandi.


Eins og glöggir lesendur sjá má sjá Jimmy hérna hægra megin. Ég er með bleika kórónu á höfði, bleikar fjaðrir um hálsinn en bleika gadda úlnliðsbandið sést ekki. Ég fékk reyndar einn silfurlitaðan hanska á höndina, sem náði mér upp á olnboga, en hann var ekki að gera lítið samkynhneigða hluti. Auðvitað með bjór, og meiri bjór í töskunni. Hafði því miður ekki meiri tíma til að finna samkynhneigðari búning. Þetta dugði alveg ágætlega samt...


Þetta er Reynir, en það nafn ætti lesendum að vera orðið að góðu kunnt. Hann var ekki að gera slæma hluti í netahlýrabolnum, með sólgleraugun og hattinn auk þess sem hann kórónaði allt með skegginu sínu, sem hann rakaði sérstaklega til í tilefni dagsins.


Á þessari mynd er ég í bakgrunni, Inga við hliðina á mér og einn Kalli fyrir framan, í rauða Reka-bolnum. Ég er orðinn drukkinn og er að syngja eitthvað.

Stórkostlegur dagur. Fleiri myndir vonandi síðar.
10. október 2006 klukkan 01:59
Hjalti Ţór Hreinsson
4 athugasemdir
07október

Jú, ţađ er romm



Mynd: Ég kominn með romm í gærkvöldi.
Mynd 2: Ég með rommið, við komu, á fimmtudaginn.

Á fimmtudag var stór dagur í lífi mínu. Þá fékk ég loksins loksins loksins Fanta Lemon!

Það er ekki úr vegi að þakka Nestornum kærlega fyrir það. Hann sendi þennan líka dýnamíska pakka að sunnan sem innihélt ekki eina, nei heldur tvær Fanta Lemon (var búinn að gefa E. Stefáni kúdós fyrir að kaupa Fantað í Norður-Írlandi, fær samt aðra snuddu), og var sú fyrri notuð í gær.

Ég bauð Reyni að vera þess heiðurs aðnjótandi að fá romm með mér. Hann hataði það nú ekki en eins og siðast, þá var hver sopinn betri en hinn. Rommið er nefnilega best þegar það er búið að blandast aðeins Fantanu og klökunum....

Þetta var stórkostleg upplifun og hringdi ég að sjálfsögðu í Nestorinn þar sem hann er staddur í Lictenstein eða eitthvað og bauð upp á beina rommútsendingu.

Nestorinn fær hér með innilegar þakkir fyrir að gera þetta að veruleika, eftir langa og stranga bið frá því ég keypti rommið í New York. Takk Nestor.

Annars voru próf hjá mér á fimmtudaginn og föstudaginn. Helvíti skemmtilegt alveg. Mér voru þó launuð umbun erfiðisins í gær, föstudag, þegar svokallaður sprelldagur varr haldinn hátíðlegur í Háskólanum á Akureyri. Þá hittast allar deildir niðri í bæ, kl´dd búningum, drekka geðveikt mikið og syngja og eitthvað. Bæjarstjórinn velur svo bestu söngvana og eitthvað. Held ég.

Deildin mín, sem ber það skemmtilega nafn Kumpáni, var með Gay Pride þema. Hvað annað? Ég bauð upp á bleikt gaddaarmband, kórónu og bleikar fjaðrir um hálsinn, auk málningar og glimmers í andlitinu. Og bjór. Hjörtur tók einhverjar 300 myndir og vonast ég til þess að hann geti sent mér eitthvað af þeim við tækifæri.

Ég byrjaði í bjórnum um 12.30 og var ekki lengi að ná mönnum sem byrjað höfðu um 9 leytið um morguninn... svo var farið í bæinn og þaðan lá leiðin í Þelamörk. Það var hressandi íþróttamót þar sem drykkja var í fyrirrúmi. Það var ágætt.

Svo var farið heim, boðið upp á kríu, þar til Reynir og Inga kíktu til mín. Pizza og bjór, auk rommsins áður en við fórum til Kristínar. Þar var Anna og Davíð, kærasti Kristínar, en hann er toppmaður mikill og bauð upp á skemmtilega drykki sem fóru aaaaansi vel í maga. Hann bauð einnig upp á skot og bjór í Sjallanum þar sem síðan var haldið, og er ekki úr vegi að gefa honum kúdós fyrir það...

Kvöldið endaði svo bara... einhvernveginn....

Reykjavík City, einmitt með Kristínu og líklega fleirum, á fimmtudaginn.
07. október 2006 klukkan 20:11
Hjalti Ţór Hreinsson
2 athugasemdir
02október

Ţađ styttist..



Jú, það er ein færsla.

Það styttist óðum í Reykjavíkurför mína en ég er enn að vona að ég nái að gabba einhvern til að keyra með mér á fimmtudeginum 12. október. Planið þá er að kíkja jafnvel á kaffihús um kvöldið, Anna hatar ekki að versla og því er spurnning um að detta í Kringluna á föstudeginum auk þess sem er aldrei að vita nema maður splæsi á Carterinn jafnvel? Ég set málið í nefnd.

Á föstudeginum er svo Lárus frændi minn eins árs og verður honum haldin veisla í tilefni af því.

Um kvöldið mun Davíð, sem ég tíundaði um í færslunni hér fyrir neðan, halda ærlegt partý. Eins og ég hef áður greint frá hötum við ekki að fá okkur og skemmta okkur saman en fát kom á mig þegar í ljós kom að ég myndi hugsanlega missa af partýinu þar sem það kom líka til greina að halda það á laugardeginum. Davíð stóð við sitt og því verður vatnslásað rækilega á föstudeginum. Stórkostlegt.

Laugardagurinn fer væntanlega í þynnku áður en Sundlaugavegurinn verður fyrir barðinu á rommþyrstum og eiturhressum pörupiltum. ROMM!!!!!!!!! Eins gott að það verði búið að taka þessa íbúð í gegn áður en við komum, heimsókn í Ikea myndi ekki skemma fyrir neinum, BB.

Um kvöldið er svo lokahóf KSÍ en eins og myndin hér fyrir ofan sýnir, þá er ég ávallt hress á þessum hófum. Þarna er ég með tveimur ungum leikmönnum FH og einum úr Breiðablik á hófinu í fyrra þar sem ég bolaði gjöööörsamlega yfir mig. Þeir sem mæta í partýið fá að sjá hinar sextán myndirnar, en þessi er sú slakasta af þeim. Lokahófið er alltaf skemmtilegt.

Skellti mér á Ólafsjförð á laugardaginn. Einstaklega gott að koma þangað. Toppfólk þar á ferðinni en ég var ekki kominn inn fyrr en Jói, sem var að sjálfsögðu klæddur í Man U treyju, bara af því hann vissi að ég held með allt öðru liði, var búinn að bjóða mér nýbakaðar pönnukökur og meððí. Hef ekki fengið pönnukökur í langan tíma. Ætla að bæta úr því aftur fljótlega.

Svo fékk ég það sem mig hefur langað í lengi, almennilegan fisk. Þið Reykvíkingar fáið auðvitað aldrei almennilegan fisk (ég er ekkert byrjaður að tala eins og eitthvað út-á-landi-lið, búinn að eiga heima á Akureyri í alveg sex vikur). Fékk líka gefins sæg af fiski sem verður eldaður í vikunni.

Góður laugardagur.

Sunnudagur... gerði ekkert. Mjög gott.

og að lokum.... ætli þið ekki að læra, hálfvitarnir ykkar????

Af mbl.is:
Sautján ára ökumaður með þriggja mánaða gamalt ökuskírteini var stöðvaður á 154 km hraða á Reykjanesbraut til móts við Smáralind í gærkvöldi, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar í Kópavogi. Hámarkshraði þar er 70 km. Ökumaðurinn ungi tjáði lögreglu að hann væri nýbúinn að sjá kappakstursmynd í bíó og hefði verið að reyna að lifa sig inn í hana.

Önnur frétt af mbl.is:
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði kappakstur tveggja ungra manna á Sæbrautinni á tíunda tímanum í gærkvöldi. Mældust þeir báðir á rösklega 130 km hraða en hámarkshraðinn er 60 km/klst. Mega þessir ökukappar eiga von á vænni sekt og því að missa ökuleyfið í það minnsta í mánuð fyrir tiltækið.


Það er greinilegt að þessi endalausi áróður er að skila nákvæmlega ekki neinu, því miður. Ég er reyndar sérstaklega pirraður yfir þessum gaur úr fyrri fréttinni af því rétt áður var ég að lesa einhverja óhugnalegustu frétt sem ég hef lesið um atburð á Íslandi.

Fjósist þið til að aka almennilega!!!!!!!!!!!!!!!

02. október 2006 klukkan 22:44
Hjalti Ţór Hreinsson
6 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing

Leit

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...