Dagurinn í dag hefur verið alveg ágætur. Tók þá stórundarlegu ákvörun að fara í sund eftir að við Reynir kíktum í Bónus og synti aðeins, tók pottinn og slíkt og ákvað síðan að labba upp í Sólborg. Þar sem ég ætla einnig í Hreyfisalinn á eftir þurfti ég að rogast með fullan Bónuspoka í íþróttatöskunnni ásamt sunddótinu en setti hreinu íþróttafötin hjá fartölvunni og skóladraslinu. Verður gaman að fara heim í kvöld.
Er semsagt kominn á bókasafnið til að læra. Alveg að nenna því...
Þess ber að geta að Gussi Jalli er að gera mjög gott mót í Fréttablaðinu í dag.
Á morgun er Liverpool að spila gegn Barcelona. Ég verð á síðari leiknum (já og leiknum gegn Man Utd líka (bara svona fyrir þá sem ekki vissu (og aðeins til að bögga systur mína og fleiri líka))), og er planið að hitta strákana einhversstaðar og kíkja á leikinn. Eitthvað er verið að reyna að draga mig í partý á fimmtudaginn sem mér lýst ekkert á.
Laugardagurinn gæti þó endað með smá drykkju, kannski heima hjá mér, en hugsanlega heima hjá Ester og Evu. Það mun koma í ljós, eins og svo margt annað.
Ég verð að nefna lagið Grace Kelly með Mika aftur. Reynir bauð upp á lagið fyrir tíma klukkan 8 í morgun og bekkurinn hreinlega söng og dansaði með. Yndislegt alveg. Klárlega orðið að hefð að byrja daginn á þessu stórskemmtilega lagi!
Best að skella sér í lærdóminn, en þess ber að geta að stemmningin hér á bókasafninu er gríðarleg...
20. febrúar 2007 klukkan 16:10
Hjalti Þór Hreinsson 4 athugasemdir
Lúxussystirin á afmæli í dag! Hér með fær hún innilegar og hugheilar afmæliskveðjur frá Akureyri. Afmælisgjöf hennar verður keypt úti í Liverpool og því verður hún að láta sér þessa kveðju og símtal á eftir duga í bili. Til hamingju með daginn systir góð!
Tók góða afslöppun á þetta í gær, var hjá Reyni og horfði á Eurovison þar. Var boðið í partý en eftir skemmtanahöld kvöldið áður nennti ég hreinlega ekki að gera neitt drastískt. Gríðarlega ánægður með sigur Eiríks Haukssonar, magnað alveg. Svo fannst mér líklega Húsin hafa augu, með Matta þarna úr Pöpunum, vera næst besta lagið.
Hvað var þetta sem lenti í þriðja sæti?? Einnig ánægður með að Jónsi komst ekki á topp þrjú... Eiríkur er vel þekktur innan Eurovison heimsins og ef hann beitir svipuðum búning og 1986, eins og hann gerði í gær (er reyndar kominn í leðurfrakka sem gerði gott mót, þá gætum við alveg komist áfram.
Tek undir með Sigmari í Kastljósinu sem hafði þetta um keppnina í gær að segja á blogginu sínu: "Í fyrra sendum við leikna fígúru með munnræpu og athyglisbrest. Í ár sendum við rauðhærðan Norðmann. Á næsta ári er fullkomlega lógískt að senda Geir Ólafs."
Konudagurinn er í dag, verst að ég á enga konu til að dekra...
Planið í dag: Læra, hitta Gussa og fara á handboltaleik...
PS: Ef ykkur vantar að komast í svona "jolly" gott skap mæli ég með laginu Grace Kelly með hljómsveitinni MIKA.
18. febrúar 2007 klukkan 12:22
Hjalti Þór Hreinsson 6 athugasemdir
Ég fór í annað skipti á ævinni á snjóbretti í gær. Ég fór fyrst fyrir einum mánuði eins og ég tíundaði í færslu hér rétt fyrir neðan og gekk það ekkert sérstaklega vel. Þá var mér sagt að drulla mér efst og henda mér niður (ok, var kannski sagt aðeins hvað ég átti að gera) og lá ég ósjaldan óvígur eftir svo mörgum þótti ofaukið.
Í gær fór ég með Reyni og Joe og hittum við fyrir Ester og Hjört. Ester er brettakennari uppi í fjalli og var svo góð að taka mig í smá kennslu á nýja notaða brettinu mínu sem ég fékk frá Þorgeiri. Keypti mér skó um daginn og þegar upp í sjálft Hlíðafjall var komið lét ég gárunga þar skrúfa bindingarnar á. Ég hélt nú að kapparnir þarna í þessu magnaða skíðasvæði kynnu sitt fag en nei nei..
Allt gekk vel fyrst eftir að hafa borgað 1000 krónur, já 1000 krónur, fyrir átta skrúfur og að láta skrúfa þær í. Fékk reyndar eitthvað lím ofaná þetta allt í kaupbæti. Ég sagði ekkert enda veit ég ekkert um þetta.
Nú Ester gerði gott mót í að kenna mér réttu hreyfingarnar og allt það og svo var haldið upp lyftuna. Þegar ég fór í fyrsta skipti í lyftuna datt ég eftirminnilega úr henni við mikla kátínu viðstaddra en ég átti eftir að vera hrókur alls fagnaðar þegar ég kom upp núna. Þegar ég henti mér úr stólnum og út í brekkuna datt ég og jú, bindingin datt af brettinu! Ester, sem augljóslega er ýmsu vön, sagðist aldrei hafa séð annað eins.
Snjóbrettaferill minn er semsagt að fara heeeeelvíti vel af stað. Tók lyftuna aftur niður og fékk lánað bretti, frítt að sjálfsögðu auk þess að fá endurgreitt. Ester hélt svo áfram að kenna mér og ég náði bara merkilega góðum tökum á þessu! Kom sjálfum mér á óvart... Tók nokkrar slæmar byltur þar sem ég skall á rófubeinið og hnakkinn í jörðina eftir því. Ekki þægilegt og er ég að súpa seyðið af því í dag þar sem ég er að deyja í hálsinum og rófubeininu.
Asnaðist samt í fótbolta áðan, enda vildi ég ekki svíkja Johnson sem var svo góður að skutla mér í Ríkið og Bónus um morguninn, og náði ég varla að skokka. Spilaði samt í 45 mínútur en gerði ekkert sérstakt mót. Bauð Johnson svo á Pengs í þakklætisskyni fyrir margt. Núðlurnar á Pengs eru einmitt þær bestu í heimi....
Í gær gerði ég mér svo lítið fyrir og fór á jú, femínistafund. Eftir heitar umræður á blogginu hennar Möggu um daginn ákvað ég að láta slag standa og mæta á fundinn til að kynna mér starfsemina. Var boðið í öldrykkju og Playstation hjá Reyni en stóð við orð mín og fór á fundinn. Fékk mér samt öl þar.
Þetta var hinn ágætasti fundur þrátt fyrir að ég hafi kannski ekki haft mig mikið frammi. Ég er nú ekki genginn í félagið en það er hollt að kynna sér þetta, félagið er að gera góða hluti...
Í kvöld er svo stefnan sett á vísindaferð í Símann og er líklegt að eitthvað fólk kíki heim til mín eftir hana.
Gussi Jalli kíkir svo á Akureyri á morgun, verður gott að hitta strákinn og sjá hann dæma á sunnudaginn. Mun einmitt skrifa um leikinn fyrir Fréttablaðið og er því gríðarleg pressa á honum að standa sig
Lifið heil.
16. febrúar 2007 klukkan 14:49
Hjalti Þór Hreinsson 3 athugasemdir
Vegna fjööööööölda áskoranna sé ég mér ekki annað fært en að setja inn eins og eina færslu inn á þetta blogg. Efast um að einhver skoði það enn þann dag í dag en mér er nokk sama.
Janúarmánuður var viðburðarríkur í meira lagi, uppfullur af handbolta, skóla, aaaalltof miklum peningum og smá drama. Góð blanda. Horfi fram á veginn núna, með ákveðinn punkt í huga meira að segja. Langur vegur þangað samt, og illfarinn.
Foreldrar mínir komu í heimsókn um helgina. Íbúðin mín er nú orðin stórkostlegt, finnst mér í það minnsta, og r eiginlega bara komin á hana þessi endanlega mynd sem ég sá fyrir mér þegar ég flutti inn síðasta haust. Get ekki annað sagt en að mér líði vel hérna. Akureyri er eiginlega miklu betri en ég bjóst við.....
Skólinn er góður. Er loksins byrjaður í fjölmiðlafræði og er það svo gaman að ég keypti mér meira að segja bækurnar fyrir áfangann OG ég er að lesa þær. Stórskemmtilegt það.
Fór að djamma í gær þrátt fyrir nærveru foreldranna. Vá hvað maður hugsaði oft um það þegar maður var þunnur á sunnudegi í Reykjavík að maður væri til í að búa einn... stórkostlegt að upplifa það síðan að búa einn og get ekki sagt að ég hafi fengið flashback á þetta í dag. Gott að fá þau í heimsókn...
Fór í partý til Dagnýjar sem var gríðarlega skemmtilegt. Gerði gott mót í Actionary og blöndun á Pina Colada þar áður en við fórum á Amour. Það er reyklaust kaffihús/skemmtistaður fyrir þá sem ekki vita og þvílíkur munur! Ég fann ekki fyrir þynnku og hefði getað notað sömu föt og ég var í í gær hefði ég kosið það! Allt reyklaust 1. júní, hlakka mikið til þess. Amour stóð fyrir sínu og skellti ég mér meðal annars í hlutverk barþjóns. Gerði gott mót áður en Hjörtur henti mér út af barnum.
Þorgeir var að selja mér gamla snjóbrettið sitt, sem er mjög mjög gott. Stefni á að fara í fyrsta skipti á fimmtudaginn þar sem annasöm vika er framundan í skólanum.
Gómaði mig um daginn við að hafa gaman af Greys Anatomy! Jafnvel að maður kíki á einn þátt í kvöld þar sem ég er að verða búinn að horfa á alla Simpson þættina af Alluc.org held ég enda ekki slæmt að taka eins og einn þátt eða tvo fyrir svefninn. Sama gildir um Family Guy og American Dad.
Já og ég er að fara á femínistafund! Verður fróðlegt, Magga ætlar að láta mig vita af næsta fundi og mun ég þar kynna mér starfsemi félagsins hér á Akureyri þar sem ég stefni meðal annar að því komast að því hvað femínisti er (er ég femínisti ef ég aðhyllist jafnrétti kynjanna eða?) auk þess sem við munum væntanlega ræða leikfangabæklinga. Þar eru ákveðin skilaboð sem þær stöllur eru ekki sáttar við.
Stórskemmtileg færsla alveg.... en ég bloggaði amk!
11. febrúar 2007 klukkan 16:14
Hjalti Þór Hreinsson 7 athugasemdir